Síðdegisútvarpið

Manneskja ársins, Völva vikunnar, Villi Netó og Anna Ljósa

Reykjavíkurborg hefur hlotið ríflega 150 milljón kr. styrk úr LIFE áætlun Evrópusambandsins til þess bæta vatnsgæði í Vatnsmýrinni og Tjörninni. En hvað þýðir þetta og hvað verður gert Þórólfur Jónsson er deildarstjóri náttúru og garða hjá borginni hann var á línunni.

Varla hægt hugsa sér betri gest en Villa Netó á föstudegi fyrir jól. Hann sagði okkur frá portúgölskum jólahefðum og jólalaginu sínu.

Þann 18. desember sl. kom Völva Vikunnar út og ritstjóri hennar í ár er engin önnur en Snærós Sindradóttir. Hún býr og starfar og stundar nám í Ungverjalandi nánar tiltekið í Budapest og við hringdum þangað.

Fáir einstaklingar lesa jafn mikið af bókum á ári og Þorgeir Tryggvason, enda er hann bókagagnrýnandi fyrir Kiljuna. Þar sem hlustendur Síðdegisútvarpsins eru í óða önn við kaupa síðustu jólagjafirnar. Þorgeir sagði okkur hvaða bækur standa upp úr á árinu.

Líkt og komið hefur fram í fréttum þá hefur RS-veiran hefur lagst þungt á landann þennan veturinn. Fleiri börn hafa verið veikjast en venjulega og þau fengið meiri einkenni. Nokkur börn hafa verið lögð inn á gjörgæslu með sýkingu. eru jólaboðin framundan og þá ber varast og fólk ætti fara varlega í kyssa börnin. Við heyrðum í konu sem hefur starfað sem ljósmóðir í tugi ára og heitir Anna Eðvaldsdóttir eða Anna Ljósa en hún kann alls kyns ráð gagnvart því forðast smitin.

En við byrjuðum á segja frá því hverjir verja topp tíu listann yfir manneskju ársins á rás 2.

Frumflutt

20. des. 2024

Aðgengilegt til

20. des. 2025
Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið

Þau Guðrún Dís Emilsdóttir, Hrafnhildur Halldórsdóttir og Andri Freyr Viðarsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu í eftirmiðdaginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,