Síðdegisútvarpið

Gestur úr öðru sólkerfi, sirkus, flughátíð og kóteletta

Sumarnámskeið fyrir fötluð börn með skerta hreyfigetu verður haldið í næstu viku í Skógarseli. Þetta er nýtt verkefni en en umtalsvert færri fötluð börn stunda virkt íþróttastarf en ófötluð. Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir og Hákon Atli Bjarkason sögðu okkur frá þessu.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir tilkynnti í vor hún myndi taka sér leyfi í níu mánuði frá þingstörfum til leggja stund á MPA nám við Columbia háskóla. Fjölmargir námsmenn eru á leið í sama ferli víða um heim og okkur lék því forvitni á vita hvernig New York tekur á móti henni og hvernig gangi koma sér fyrir. Við hringdum í Áslaugu Örnu.

Þann 1. júlí sl. greindi sjónauki í Síle eitthvað óvænt: dauft fyrirbæri sem rann yfir himininn á óvenjulegum hraða og óvenjulegu horni. Þetta var ekki halastjarna frá útjaðri sólkerfisins okkar, heldur geimfoki frá annarri stjörnu. Hann hefur fengið nafnið 3I/ATLAS. En stefnir hann á jörðina? Sævar Helgi Bragason sagði okkur meira frá þessari uppgötvun.

Flughátíðin allt sem flýgur verður haldin á Hellu um helgina, þar sem flugmenn leika listir sínar á loftförum af hinum ýmsu gerðum. Ef veður leyfir amk. Matthías Sveinbjörnsson formaður Flugmálafélagsins kíkti við.

Sirkustjaldið Jökla hefur risið á í Vatnsmýrinni og verður Sirkus Íslands með sirkussýningar þar næstu dagana. En hvað er boðið uppá í íslensku sirkus? Sigríður Fjóla Þórarinsdóttir, Sirrý, kom til upplýsa um það.

Tónlistarhátíðin Kótelettan fagnar 15 ára afmæli sínu um helgina. Hátíðin hefst á upphitunartónleikum annað kvöld, og þeir eru ekki af verri endanum, en þar stígur Todmobile á stokk. Eyþór Arnalds kom til okkar.

Frumflutt

9. júlí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið

Þau Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu í sumar. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,