Síðdegisútvarpið

Geislavirkar heilsuvörur, gervigreind, offita og dans

Á föstudaginn birtist frétt á mbl.is unnin úr Dagmála þætti sem er finna á síðunni. Þar láta gamminn geisa alþingismennirnir Þórarinn Ingi Pétursson og Jens Garðar Helgason. Rætt var meðal annars um matarmenninguna á Alþingi. Setningin: „Er ekki best bara fara 'all-in' og taka svo bara góða ermi eft­ir ára­mót.“ sem Jens Garðar mælir í spjallinu, fór ekki vel í Sólveigu Sigurðardóttur, sem er formaður Samtaka fólk með offitu. Hún segir það þurfi meiri fræðslu með offitu ef þetta er grín dagsins. Sólveig kom okkar.

Listamaðurinn Tolli Morthens hefur lengi látið sig málefni fanga varða, og hefur síðustu ár ásamt hópi öflugra einstaklinga, leitt verkefnin Batahús og Bataakademíuna. Batahúsin eru úrræði fyrir fólk sem er koma út í lífið eftir afplánun og miklu leiti rekin fyrir styrki frá einstaklingum og fyrirtækjum í gegnum Sollusjóð. Í vor tóku Tolli og Flatbakan höndum saman í fjáröflun fyrir sjóðinn með átakinu kærleikspizzan, en í tengslum við það málaði Tolli Kærleikspizzu og voru prentuð 10 eintök af henni til selja til styrktar verkefnisins, og leita nokkur þeirra góðu heimili. Tolli kom til okkar.

Tónlistarmönnum leist mörgum ekki á blikuna þegar upp komst hljómsveitin The Velvet Sundown, sem gaf út tvær plötur á innan við mánuði og nýtur töluverðra vinsælda væri öllum líkindum er ekki til og sköpuð alfarið af gervigreind. Bubbi Morthens sagði meðal annars það væri óveður í aðsigi í tónlistarbransanum, en það eru ekki allir sammála gervigreindin svo slæm. Tónlistamaðurinn Geir Ólafs kom til okkar.

Það ráku margir upp stór augu þegar fréttir bárust af því það væri verið innkalla geislavirka límmiða sem voru seldir á þeim forsendum þeir vernduðu gegn 5G geislun. En þetta eru ekki einu geislavirku vörurnar sem hafa verið seldar til heilsubótar. Gísli Jónsson frá geislavörnum ríkisins kom til okkar.

Heimsmeistarakeppnin í dönsum hófst á föstudaginn í Burgos á Spáni. Þar eru staddir fjöldi íslenskra keppenda ásamt fjölskyldum og fylgdarliði. Við hringdum í Helgu Ástu Ólafsdóttur, sem er skólastjóri Danskompaní en hún er með stóran hóp dansara í keppninni.

Frumflutt

7. júlí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið

Þau Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu í sumar. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,