Síðdegisútvarpið

Tollar veiðigjöld og róbótar í heilbrigðisþjónustu

1605 Forsætisráðherra Íslands fundaði í dag með leiðtogum ESB í Brussel í dag um tollamál og tilraunir Íslands til komast undan mögulegum mótaðgerðum Evrópusambandsins vegna tollahækkana Bandaríkjamanna Björn Malmquist hefur fylgst með málunum í Brussel og við heyrum í honum.

1620 Við rákumst á pistil Jónasar Más Torfasonar lögfræðings um mál málanna þessa dagana, veiðigjöldin og fyrirhugaðar breytingar á þeim, þar ræðir Jónas um fyrirhugaðar breytingar á veiðigjaldinu og útskýrir í máli sínu hvernig þjóðin hefur klofnað í tvær fylkingar. Við ætlum heyra í Jónasi í þættinum og heyra hans sýn á breytingu á veiðigjöldum.

1640 Kristín Sól Ólafsdóttir er róbótahugbúnaðarverkfræðingur hjá F&P Robotics Sviss, þar sem hún starfar við hanna og þróa róbóta fyrir umönnunarstörf. Við ætlum Kristínu til okkar til segja okkur frá því hvar þessi þróun er stödd það er notkun róbóta í umönnun.

1700 Í þáttaröðinni Adolescence er saga hins þrettán ára gamla Jamie Miller sögð. Í þáttunum er Jamie handtekinn fyrir morð og færður til yfirheyrslu þar sem hann segir endurtekið hann hafi ekkert gert en sönnunargögn segja annað. Þættirnir hafa slegið áhorfsmet hjá Netflix og vakið gríðarlega athygli fyrir persónusköpun,handritsskrif en líka kvikmyndatök. Í nýlegu bréfi sem barst til skólastjórnenda á Íslandi frá embætti landlækni er ekki talin ástæða til þessir þættir eða annað sambærilegt efni sýnt í forvarnarskyni í skólum. Ingibjörg Guðmundsdóttir er verkefnastjóri Heilsueflandi skóla,

1720 Skarp­ar lækk­an­ir á heims­markaðsverði á hrá­ol­íu, bens­íni og dísi­lol­íu gætu verið til marks um aðilar á markaði sjái fyr­ir sér kreppu­ástand á næst­unni segir í nýlegri frétt á mbl. Is. Þórður Guðjónsson er forstjóri Skeljungs en hann er vægast sagt uggandi varðandi áhrif skattahækkana Trums. Hann er einmitt staddur í Bandaríkjunum um þessar mundir og við heyrum í honum þaðan.

Og meira af tollum og Trump - við ætlum ræða þessi mál við Konráð S. Guðjónsson hagfræðing sem kemur til okkar í þáttinn.

og svo er það hvort Akureyri verður skilgreind sem borg - Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri verður á línunni

Frumflutt

9. apríl 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið

Þau Guðrún Dís Emilsdóttir, Hrafnhildur Halldórsdóttir og Sigurður Þorri Gunnarsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu í eftirmiðdaginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,