Síðdegisútvarpið

Trans fólk, Trump og áhrif tollahækkana, Á vettvangi og góðgerðarpizzan

Jóhannes Kr. Kristjánsson fjölmiðlamaður hefur verið á vettvangi bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi undanfarna mánuði og gert um það þáttaröð sem nefnist Á vettvangi og er unnin fyrir Heimildina. Í þáttunum er hægt fylgjast með starfsemi bráðamóttökunnar, þar sem líf og heilsa einstaklinga er undir. Jóhannes kíkti til okkar í þáttinn.

„Það getur verið frekar þreytandi hlusta á fólk tala um málefni trans barna og ungmenna - sérstaklega þegar fólk virðist misskilja upplifun þeirra algjörlega, og heldur jafnvel fram rangfærslum eða ósannindum.“ Svona hefst pistill Uglu Stefaníu Kristjönudóttur Jónsdóttur kynjafræðingings og rithöfundar og fyrrverandi formanns Trans Ísland sem hún ritaði á Facebook í gær og vísar hún þar í orð Heiðars Guðjónssonar, hægfræðings og fjárfestis sem var gestur Vikulokanna á Rás 1 á laugardag ásamt Katrínu Ólafsdóttir lektor í hagfræði við Háskólann í Reykjavík og Jónasar Más Torfasonar, lögfræðings og formanns Félags frjálslyndra jafnaðarmanna. Umræðan í þættinum spratt upp úr umræðum af fréttum sem bárust í síðustu viku um fimmtungi drengja illa við feminsta, vegan fólk og trans fólk. Við ætlum heyrðum í Uglu í þættinum.

Fyrir helgi var greint frá því berklar hefðu greinst á Fáskrúðsfirð. Nokkrum dögum áður hafði komið upp smit í einu af gistiskýlum borgarinnar En hvers vegna eru koma upp berklasmit, hverjir eru útsettir fyrir sjúkdómnum og hvað ber varast ? Guðrún Aspelund sóttvarnarlæknir ræddi við okkur í Síðdegisútvarpinu í dag.

Hraðar og miklar breytingar hafa verið á hlutabréfamarkaði um heim allan eftir Donald Trump ákvað hækka innflutningstolla til Bandaríkjanna. Við fengum til okkar Trausta Hafliðason ristjóra Viðskiptablaðsins til rýna betur í stöðuna.

Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra verja allt 725 milljónum króna til stuðnings við bændur sem urðu fyrir tjóni vegna erfiðs tíðarfars á landinu síðasta sumar. Við heyrðum í Trausta Hjálmarssyni formanni Bændasamtaka Íslands.

Góðgerðarpizzan er komin í sölu í 12. skipti. Síðan 2013 hafa safnast 65 milljónir til góðra málefna og þessu sinni rennur öll salan óskipt til Minningarsjóðs Bryndísar Klöru. Birgir Karl Óskarsson og Iðunn Eiríksdóttir foreldrar Bryndísar Klöru ræddu við Síðdegisútvarpið.

Frumflutt

7. apríl 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið

Þau Guðrún Dís Emilsdóttir, Hrafnhildur Halldórsdóttir og Sigurður Þorri Gunnarsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu í eftirmiðdaginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,