Síðdegisútvarpið

Meira um málefni ÁTVR, Stormur og leikskólamál

Síðustu tvo daga höfum við fjallað um flutning vínbúðarinnar á Akureyri úr miðbænum í norðurhluta bæjarins og höfum bæði heyrt í aðstoðarforstjóra ÁTVR sem sagði flutninginn hafa verið nauðsynlega ákvörðun fyrirtækisins því ekki fannst annað hentungra rými í miðbænum. Við heyrðum líka í kaupmanni í miðbænum á Akureyri og bæjarstjóranum sem höfðu af þessu nokkrar áhyggjur og við fengum líka skoðanir hlustenda. Í gær hringdum við í Vilhjálm Árnason þingmann Sjálfstæðiflokksins sem vildi meina staðsetning nýrra vínbúða ráðist sannarlega ekki af lýðheilsusjónarmiðum.

Árni Guðmundsson félagsuppeldisfræðingur og formaður foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum var á línunni á eftir.

Nýr meirihluti í Reykjavík samþykkti í vikunni veita ekki fyrirtækjum leyfi til opna leikskóla í Reykjavík. Eins og kunnugt er hafði fyrirtækið Alvotech áform um um stofna leikskóla fyrir börn starfsmanna sinna í Reykjavík. Og Arion banki hafði uppi svipuð áform. Oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Hildur Björnsdóttir lýsti yfir verulegum vonbrigðum með þessa niðurstöðu og hún kom til okkar ásamt Alexöndru Briem fulltrúa í skóla - og frístundaráði fulltrúa Pirata í Borgarstjórn Reykjavíkur.

Nýlega ákvað byggðarráð Skagafjarðar félagsheimilin Skagasel og Félagsheimilið í Hegranesi yrðu sett á sölu. Ekki eru allir sáttir við þá ákvörðun og hafa Íbúasamtök Hegraness sent opið bréf til meirihluta sveitarstjórnar Skagafjarðar og Byggðalistans þar sem skorað er á meirihluta sveitarstjórnar Skagafjarðar draga tafarlaust til baka áform um sölu. Við heyrðum í ÁlfhildiLeifsdóttur sem er sveitastjórnarfulltrúi í Skagafirði

Það eru mikil lífsgæði búa við sjávarsíðuna eins og við fjölskyldan höfum gert undanfarin 15 ár hér í Skerjafirði. Nábýlið við sjóinn gefur bæði innblástur og er nærandi fyrir sál og líkama en nábýlið gekk aðeins of langt um helgina, því stórstraumsflóðið á laugardag var svo fádæma kröftugt sjórinn fyllti garðinn okkar og endaði för sína inni í húsinu með þeim afleiðingum vatn flæddi um allt í kjallaraíbúð, eyðilagði gólfefni og veggi og fjölmörg húsgögn. Þetta skrifaði Skúli Helgason borgarfulltrúi á FB síðu sína í morgun. Við hringdum í Skúla.

Við kíktum á æfingu á söngleiknum Stormi sem frumsýndur verður í Þjóðleikhúsinu í kvöld. Þetta er nýr söngleikur eftir Unni Ösp og Unu Torfa. Siggi hitti Birtu Sólveigu, Sölku Gústafsdóttur, Berglindi Öldu Ástþórsdóttur, og Jakob Van Oosterhout.

Iðunn Andrésdóttir fréttamaður kom til okkar og sagði okkur af samskiptum Trump og Hamas.

Frumflutt

6. mars 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið

Þau Guðrún Dís Emilsdóttir, Hrafnhildur Halldórsdóttir og Sigurður Þorri Gunnarsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu í eftirmiðdaginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,