Síðdegisútvarpið

Guðmundur Fylkisson manneskja ársins í einlægu viðtali

Birta Björnsdóttir og Sunnar Karen Sigurþórsdóttir hafa unnnið hörðum höndum því taka saman fréttir ársins 2025, en fréttaannállinn verður á dagskrá RÚV á morgun klukkan 21:15. Þær settust niður með okkur og gáfu okkur innsýn í það sem koma skal annað hvað.

Jóhann Hlíðar Harðarson fréttaritari okkar frá Spáni var á línunni og hann var á ársuppgjörs nótum.

Hinn eini sanni Árni Matt er uppfullur af visku og veit hann allt um tíst ársins og hann kom til okkar og sagði okkur frá sigur tísitinu í flokknum furðulegasta og skrítnasta tístið.

Hlustendur Rásar 2 hafa undanförnu, líkt og fyrri ár útnefnt og kosið manneskju ársins. þessu sinni kaus þjóðin Guðmund Fylkisson lögreglumann fyrir vera óstöðvandi í leit týndra barna, láta sig varða málefni barna með fíknivanda, og minna foreldra á gefa sér tíma í uppeldi barnanna. Guðmundur Fylkisson manneksja ársins kom til okkar.

Erla Guðmundsdóttir heilsumarkþjálfi og íþróttafræðingur ætlar bjóða þjóðinni í himnastigagöngu á nýársdag. Erla kom til okkar.

Við settum okkur í samband við Jón Þór Víglundsson upplýsingafulltrúa hjá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg og spurðum hvernig gangi selja flugelda á þessum næstsíðasta degi ársins.

Frumflutt

30. des. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Rúnar Róbertsson og Margrét Marteinsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,