Síðdegisútvarpið

Landsleikur, Perla Peppari og Una Torfa tekur lagið ásamt Ceasetone

Síðdegisútvarpið 30. maí

Ísland mætir Noregi í næst síðasta leik sínum í Þjóðadeildinni í kvöld Leikurinn hefst klukkan 18:00 og verður í beinni útsending á RÚV. Stofan hitar upp frá 17:30, Óðinn Svan Óðinsson var á línunni frá Noregi.

Gunnar Dofri frá Sorpu kemur til okkar en Góði Hirðirinn er þrjátíu ára á morgun.

Perla Magnúsdóttir leiðsögumaður og atvinnupeppari kom til okkar í kaffibolla á föstudegi.

Eggert Sólberg Jónsson sagði okkur frá sjómannadeginum í Grindavík.

Tónlistarparið Una Torfa og Hafsteinn Þráinsson komu til okkar klukkan fimm í spjall og spilerí.

Tillaga umhverfis- og skipulagssviðs um Byttebox verkefnið var samþykkt á fundi umhverfis og skipulagsráðs fyrr í vikunni. En hvað er það - Friðrik Gunnarsson verkefnastjóri á skrifstofu umhverfisgæða hjá Reykjavíkurborg, veit allt um málið

Matthías Sveinbjörnsson forseti flugmálafélagsins sagði okkur stuttlega frá Flugdeginum sem haldinn verður hátíðlegur í Reykjavík á morgun.

Við heyrðum í Friðriki Ómari sem var staddur á Reykjavíkurvíkurflugvelli en hann er byrja með Félagsheimilið á sunnudaginn.

Frumflutt

30. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið

Þau Guðrún Dís Emilsdóttir, Hrafnhildur Halldórsdóttir og Sigurður Þorri Gunnarsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu í eftirmiðdaginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,