Síðdegisútvarpið

Hermiakstur, verðbólga, viðskipti, þjóðbúningar og ferðalög

Síðdegisútvarpið 28. maí

Við fengum góðar fréttir í morgun en Verðbólguaukning í síðasta mánuði gekk til baka í maí samkvæmt tölum Hagstofu Íslands. Verðbólga mælist 3,8 prósent og hefur ekki verið lægri í fjögur og hálft ár. Hildur Margrét Jóhannsdóttir starfandi aðalhagfræðingur hjá Landsbankanum ræddi málið við Sídegisútvarpið í dag.

Ingvi Georgsson fékk þá hugmynd selja þjóðbúninga fyrir börn á netinu. Hann sagði okkur frá þessari hugmynd.

Trausti Hafliðason ritstjóri Viðskiptablaðsins fór yfir stöðuna í viðskiptunum með okkur. hafa bæði Arion banki og Íslandsbanki lýst yfir vilja til hefja viðræður um samruna við Kviku banka.

Ferðahjónin Trausti Hafsteinsson og Rún Kormáksdóttir sögðu hlustendum frá ævintýrum sínum en þau ákváðu fara út í eigin rekstur á ferðaskrifstofu.

Heiðar Örn Sigurfinnsson fréttastjóri RÚV ræddi traust til fjölmiðla og falsfréttir í kjölfar skýrslu Fjölmiðlanefndar sem birt var í gær.

Alda Karen Hjaltalín Lopez sem er landsmönnum kunn fyrir fyrirlestra og sjálfshjálparbækur býr í Bandaríkjunum. Hún sagði nýlega frá því hún væri stunda eitthvað sem heitir hermiakstur og væri taka þátt í sex vikna keppni í því. Síðdegisútvarpið forvitnaðist um málið.

Frumflutt

28. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið

Þau Guðrún Dís Emilsdóttir, Hrafnhildur Halldórsdóttir og Sigurður Þorri Gunnarsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu í eftirmiðdaginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,