Síðdegisútvarpið

Grásleppa, kvartmíla og harmleikur í Liverpool.

Síðdegisútvarpið 27. maí

Í tilefni af því Kvartmílu-klúbburinn fagnar fimmtíu ára afmæli í júlí þá fengum við til okkar formann klúbbsins en hann heitir því þjóðlega nafni Ingólfur Arnason. Hann sagði okkur frá klúbbnum og hvað þar fer fram ásamt tryllitækjasýningu á vegum klúbbsins um næstu helgi.

Frá og með 14. október næstkomandi mun Microsoft hætta öryggisuppfærslum, tækniaðstoð og öðrum uppfærslum fyrir Windows 10. En hvað þýðir þetta fyrir okkur sem erum með þetta stýrikerfi á tölvunum okkar? Og hvernig vitum við hvort við séum með þessa útgáfu eða ekki? Arnar S. Gunnarsson, forstöðumaður öryggislausna hjá OK fór yfir málið.

Fjölmiðlanefnd birti í gær niðurstöðu skýrslu sem unnu og kalla Falsfréttir og upplýsingaóreiða í aðdraganda alþingiskosninga 2024. Meira en helmingur þátttakenda sagðist hafa orðið var við það falsfréttum eða röngum upplýsingum hafi verið beitt til hafa áhrif á niðurstöður alþingiskosninga á Íslandi sem er fjölgun frá árinu 2021. Skúli Bragi Geirdal, fjölmiðlafræðingur hjá Fjölmiðlanefnd, fór yfir niðurstöðurnar.

Fanney Dóra Sigurjónsdóttir, matreiðslumeistari og áhugamanneskja um Grásleppuna, var á línunni frá Bakkafirði en þar fer fram hátíðin Grásleppan 2025 um helgina. Við ræddum við hana um Grásleppuna.

Þá tókum við stöðuna á fréttum frá Liverpool en þar breyttust mikil fagnaðarlæti vegna Englandsmeistaratitils Liverpool í harmleik þegar bíl var ekið inní mannfjöldann. Hallgrímur Indriðason fréttamaður hefur fylgst með fréttum af þessu máli í gær og í dag og fór aðeins yfir nýjustu fréttir með okkur. Þá var stuðningsmaður Liverpool, Kristján Ingi Gunnarsson, sem var í borginni í gær á línunni hjá okkur.

Frumflutt

27. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið

Þau Guðrún Dís Emilsdóttir, Hrafnhildur Halldórsdóttir og Sigurður Þorri Gunnarsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu í eftirmiðdaginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,