Síðdegisútvarpið 19. maí
Við vorum á sumarlegum nótum í dag í Síðdegisútvarpinu og sendum beint frá Nauthólsvíkinni í Reykjavík.
Davíð Þorláksson er framkvæmdastjóri betri samgangna ohf. en nú er allt komið á fullt við smíði nýrrar brúar yfir Fossvog. Við ræddum við hann um þetta risavaxna verkefni.
Svo er það sólin og varnir gegn henni. Ragna Hlín Þorleifsdóttir húðlæknir kom til okkar í þáttinn í dag.
Óli Þór Árnason veðurfræðingur ræddi við okkur um veðrið og stöðuna næstu daga.
Við hringdum til Cannes í Frakklandi en Saga Garðarsdóttir er á heimleið eftir að hafa baðað sig á rauða dreglinum í borginni en hún leikur aðalhlutverkið í kvikmynd Hlyns Pálmasonar sem ber heitið Ástin sem eftir er og var heimsfrumsýnd þar um helgina.
Við spjölluðum við Jóhann Hlíðar Harðarson sem býr og starfar á Spáni og fengum nýjustu fréttir þaðan.
Margrét Leifsdóttir og Guðrún Tinna stundar sjósund og þær komu til okkar og skelltu sér til sunds með Sigga og Hrafnhildi.
Lagalisti:
Celeb og Sigríður Beinteinsdóttir - Þokan.
Ed Sheeran - Azizam.
Páll Óskar - Betra Líf.
Helgi Björnsson & Ragnhildur Steinunn - Sumarást.
Áhöfnin á Húna - Sumardagur.
Pálmi Gunnarsson - Hvers vegna varst'ekki kyrr?
Stefán Hilmarsson og Milljónamæringarnir - Lúðvík.
DJ Jazzy Jeff and The Fresh Prince - Summertime.
Joe Cocker - Summer in the city.
Bjarni Arason - Þegar sólin sýnir lit.