Síðdegisútvarpið

Jón Gnarr á skólabekk,Þorgerður Katrín í Auschwitz og afreksíþróttafólk með átraskanir

Á dögunum varði Birna Varðardóttir doktorsverkefni sitt í íþrótta- og heilsufræði við Háskóla Íslands sem tók á hlutfallslegum orkuskorti meðal afreksfólks í íþróttum. Skimað var fyrir átröskunarhegðun hjá bæði konum og körlum á breiðu aldursbili í fjölbreyttum íþróttum, allt frá lyftingum yfir í boltaíþróttir. Birna kom til okkar og sagði okkur frá helstu niðurstöðum rannsóknarinnar.

Jón Gnarr þingmaður Viðreisnar er nýr inn á þing eins og alþjóð er kunnugt um. venju er nýjum þingmönnum gert ganga í svokallaðann Þingmannaskóla áður en haldið er til starfa. Jón Gnarr kom til okkar beint af skólabekknum.

Stormur heitir glænýr söngleikur sem talar til ólíkra kynslóða um fyrstu stóru tímamót lífsins. Una Torfadóttir semur tónistina í verkinu og leikur í því og Unnur Ösp Stefánsdóttir leikstýrir, en saman semja þær verkið. Þær kíktu í kaffi.

Sigríður Halldórsdóttir og Baldvin Þór Bergsson komu til okkar og sögðu okkur frá því hvað verður rætt á Torginu sem er umræðuþáttur í beinni útsendingu þar sem fólkið í landinu varpar fram spurningum og stendur fyrir máli sínu. Umfjöllunarefnið er þjóðaröryggi og áfallaþol.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra var fulltrúi ríkisstjórnar Íslands á minningarathöfn sem haldin var í Auschwitz í gær og hún var á línunni hjá okkur.

Frumflutt

28. jan. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Síðdegisútvarpið

Síðdegisútvarpið

Þau Guðrún Dís Emilsdóttir, Hrafnhildur Halldórsdóttir og Andri Freyr Viðarsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu í eftirmiðdaginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,