Þetta helst

Samhengi uppsagna og 10 milljarða arðgreiðslu Kviku banka

Kvika banki tilkynnti um uppsagnir á ellefu starfsmönnum sama daginn í síðustu viku og hluthafafundur bankans ákvað greiða rúmlega 10 milljarða króna sérstaka arðgreiðslu út úr bankanum. Fimm stærstu hluthafar bankans eru lífeyrissjóðir.

Hvað segja lífeyrissjóðirnir um þessa arðgreiðslu og þessar uppsagnir samhliða henni?

Fjallað er um þetta og samhengi þessara arðgreiðslu en hún var ákveðin skömmu eftir hætt var við forviðræður Kviku og Arion banka um mögulegan samruna í haust.

Birt eru svör frá Ármanni Þorvaldssyni, forstjóra Kviku, um málið sem og frá tveimur lífeyrissjóðum sem eru meðal stærstu hluthafa Kviku, Gildi og Birtu. Þá er rætt við Ara Skúlason, formann félags starfsmanna fjármálafyrirtækja.

Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Birt

8. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Þetta helst

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Þættir

,