Þetta helst

Risi Jóns Ásgeirs opnar fyrstu lágvöruverðsverslunina á Blönduósi

Fyrirhugaður smásölurisi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar ætlar opna fyrstu lágvöruverðsverslunina á Blönduósi. Fyrirtækið heitir Drangar og verður það þriðji smásölurisinn á markaðnum, ásamt Högum og Festi. Kallað hefur verið eftir í áratugi lágvöruverðsverslun opni í Húnavatnssýslu og Skagafirði.

Reynir Grétarsson fjárfestir hefur framselt lóð undir verslunina til Dranga en hann hefur staðið í uppbyggingarstarfi í ferðaþjónustu á Blönduósi síðastliðin ár.

Rætt er við Reyni, forstjóra Dranga, formann Neytendasamtakanna og sveitarstjórann í Húnabyggð um lágvöruverslunina og mikilvægi hennar fyrir byggðina á Blönduósi og nærliggjandi sveitum.

Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Frumflutt

7. nóv. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.

Þættir

,