Þetta helst

Samruni Íslandsbanka og Skaga

Greint var frá viðræðum um samruna Íslandsbanka og Skaga fyrr í vikunni.

Hugmyndin er hluthafar Skaga fái 15 prósent af hlutafénu í sameinuðu fyrirtæki. Samlegðaráhrifin af samrunanum eru fyrst og fremst kostnaðarhagræði og arðsamari rekstur.

Skagi samanstendur af þremur fyrirtækjum: tryggingafélaginu VÍS, fjárfestingarbankanum Fossum og verðbréfafyrirtækinu Íslenskum verðbréfum.

Þrír stærstu einkafjárfestarnir í Skaga eru félög sem tengjast þekktum viðskiptamönnum eins og Bjarna Ármannssyni, Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og Sigurbirni Þorkelssyni.

Rætt er um samrunann við Snorra Jakobsson hjá greiningarfyrirtækinu Jakobsson Capital.

Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Frumflutt

10. okt. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.

Þættir

,