Þetta helst

Ríkisfyrirtæki setja 245 milljónir í félagsgjöld

Kristján Þórður Snæbjarnarson, þingmaður Samfylkingarinnar, óskaði nýlega upplýsinga um hvaða fyrirtæki í eigu ríkisins hefðu greitt til Viðskiptaráðs, Samtaka atvinnulífsins og tengdra félaga á síðustu tíu árum. Fjármála- og efnahagsráðherra birti svar við fyrirspurninni í fyrrakvöld og í ljós kom tólf fyrirtæki, sem eru hluta eða heild í eigu ríkisins, greiða 245 milljónir króna í félagsgjöld til samtakanna og hafa greitt um tvo milljarða frá 2015.

Rýnt er í þessi mál og rætt við Kristján og Björn Brynjúlf Björnsson, framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs, í þætti dagsins.

Umsjón: Ingvar Þór Björnsson

Frumflutt

3. des. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.

Þættir

,