Þetta helst

Íslandstengingar Vitaly Orlovs

Síðastliðna tvo mánuði hafa verið sagðar margar fréttir í fjölmiðlum um viðskiptaþvinganir gegn fyrirtækinu Vélfagi á Akureyri.

Viðskiptaþvinganirnar byggja á því fyrrverandi eigandi Vélfags er rússneska útgerðarfélagið Norebo. Útgerðin er einn stærsti kvótahafi í Evrópu, meðal annars í Noregi. Þetta fyrirtæki er talið vinna með ríkisstjórn Vladimírs Pútíns og stunda njósnir fyrir hann .

Viðskiptaþvinganir eru liður í aðgerðum Íslands, Evrópusambandsins og Noregs gegn fyrirtækjum í Rússlandi í kjölfar innrásar Rússlands í Úkraínu.

Norebo er í eigu eins frægasta og stærsta útgerðarmanns Rússlands, Vitaly Orlov. Talið er núverandi eigandi Vélfags, svissneskur bankamaður sem heitir Ivan Nivolai Kaufman, leppa eignarhaldið á Vélfagi fyrir hann.

Þessar fréttir um Vélfag og viðskiptaþvinganirnar eru án hliðstæðu hér á landi.

Vitaly Orlovs hefur hins vegar fleiri tengingar við Ísland en í gegnum vélfag. Nöfn fyrirtækja hans hafa dúkkað upp í lánaskjölum íslenskra banka í gagnalekum og fyrirtæki hans keypti Afríkútgerð Samherja árið 2013.

Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Frumflutt

4. sept. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.

Þættir

,