Líður landsbyggðin fyrir fækkun lögregluembætta?
Áform dómsmálaráðherra um sameiningu lögregluembætta hafa farið hátt undanfarið og ljóst er að skoðanir eru skiptar. Hún leggur til að níu lögregluumdæmi verði að þremur, sem hefur…
Við förum til Hafnarfjarðar í þætti dagsins þar sem bærinn hefur hafið samstarf við Stólpa um uppbyggingu á nýju tímabundnu hverfi - fyrir erlent starfsfólk sem kemur hingað til lands í skemmri tíma - við Krýsuvíkurveg og Hvaleyrarvatnsveg, rétt við Vellina. Gert er ráð fyrir allt að 130 húsum og um 260 íbúðum sem verða um 35 fermetrar.
Töluverð ólga hefur þó verið í bænum vegna áformanna. Nú hafa rúmlega tvö þúsund sett nafn sitt á undirskriftalista þar sem staðsetningunni er mótmælt.
Rætt er við dósentana Má Wolfgang Mixa og Kolbein Hólmar Stefánsson, og Elínu Sigríði Óladóttur, íbúa á Völlunum í Hafnarfirði.

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.