Þetta helst

Hjarðarhagamálið og aðstæður erlends verkafólks á leigumarkaði

Bruninn á Hjarðarhaga í síðustu viku hefur vakið mikla athygli og er til rannsóknar hjá lögreglu.

Fjórir menn bjuggu saman í íbúðinni sem er 80 fermetrar stærð og með þremur herbergjum, samkvæmt fasteignamati. Þeir voru allir erlendu bergi brotnir. Einn Bandaríkjamaður, einn Tékki og tveir Ungverjar. Þeir tengdust ekki innbyrðis. Búið var stúka af hluta íbúðarinnar til búa til fleiri lokuð rými fyrir leigjendurna.

Tveir af mönnunum létust í brunanum og þriðji særðist alvarlega. Hann komst við illan leik út um glugga á íbúðinni. Fjórði maðurinn var ekki heima þegar þessi harmleikur átti sér stað.

Í þetta helst í dag er rætt við Guðmund Hrafn Arngrímsson, formann leigjendasamtakanna, og Sögu Kjartansdóttur hjá ASÍ um þetta búsetufyrirkomulag margra erlendra verkamanna hér á landi, hversu algengt það er og hvaða vandkvæði fylgja því. Guðmundur Hrafn kallar þetta búsetuform herbergjahótel.

Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Frumflutt

27. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.

Þættir

,