Líður landsbyggðin fyrir fækkun lögregluembætta?
Áform dómsmálaráðherra um sameiningu lögregluembætta hafa farið hátt undanfarið og ljóst er að skoðanir eru skiptar. Hún leggur til að níu lögregluumdæmi verði að þremur, sem hefur…
Íslenskir ferðamenn hafa stigið fram og lýst reynslu sinni af því að hafa verið sviknir í viðskiptum með leiguhúsnæði í Alicante á Spáni. Fyrirtækið sem um ræðir heitir Sammlind og eigandi þess Samúel Jón Samúelsson.
Fólkið hefur lýst því hvernig það borgaði mörg hundruð þúsund eða jafnvel milljónir fyrir leiguíbúðir sem það fékk svo aldrei.
Gögn frá spænskum yfirvöldum og fréttir í þarlendum fjölmiðlum sýna hvers algeng slík svik í ferðamannageiranum í landinu eru.
Rætt er við tvö af fórnarlömbum Sammlindar og fjallað um þetta leigusvikamál í víðara samhengi.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.