Þetta helst

,,Líffræðilegar áskoranir” í sjókvíaeldi og framtíðin

Stærsta laxeldisfyrirtæki landsins tapaði 3 milljónum evra vegna áhrifa laxalúsar og laxadauða hjá fyrirtækinu. Framleiðsla fyrirtækisins á eldislaxi dróst saman um meira en helming frá fyrsta ársfjórðungi 2024 vegna þessa. Framleiðslan fór frá 2800 tonnum á fyrstu þremur mánuðum ársins 2024 og niður í 1100 tonn á fyrstu þremur mánuðum þessa árs. Þetta kemur fram í uppgjöri Arnarlax fyrir fyrsta ársfjórðung þessa árs á þriðjudaginn.

Í uppgjörinu kemur fram um ræða svokallaðar ,,líffræðilegar áskoranir” eða biological challenges á ensku en þetta er hugtak sem kemur ítrekað fram í gögnum um rekstur laxeldisfyrirtækja. Líffræðilegar áskoranir er samheiti yfir skakkaföll í rekstri laxeldisfyrirtækja sem rekja til veðurs, laxalúsar eða annars konar erfiðleika sem leið til taps.

Rætt er við Júlíus Birgi Kristinsson sem er með doktorsgráðu í líffræði með sérhæfingu í lífeðlisfrði laxa eftir mati hans á stöðu sjókvíaeldis á Íslandi í dag.

Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Frumflutt

23. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.

Þættir

,