Þetta helst

MAST fjarlægir búfé af sveitabæ í Eyjafirði í þriðja sinn

Matvælastofnun fjarlægði mörg hundruð dýr af sveitabænum Brimnesi í Eyjafirði í sumar vegna vanhirðu og slælegrar meðferðar. Bæði var um ræða kindur, hross og hrúta segir bóndinn á bænum, Arnar Gústafsson.

Hann segir stofnunina meðal annars hafa fjarlægt 450 kindur, 26 hrúta og 36 hross. Kindurnar voru færðar í sláturhús um helgina, segir Arnar, og hrútunum var lógað og þeir notaðir í moltu segir bóndinn. Matvælastofnun hefur reynt selja hrossin eftir þetta inngrip átti sér stað og einhverjum mun hafa verið lógað.

mati Arnars fer MAST fram með ofríki og einelti í málinu og telur hann ríkisstofnunin ætli sér knésetja hann og hans búskap í Brimnesi.

Rætt er við Arnar og forstjóra Matvælastofnunar, Hrönn Jörundsdóttur í þættinum. Hrönn segir sjaldgæft stofnunin fari í vörslusviptingu á dýrum á sveitabæjum og þetta þrautalending þegar önnur úrræði hafa ekki dugað.

Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Birt

9. sept. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Þetta helst

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Þættir

,