Þetta helst

Það sem trekkir Justin Bieber í Fljótin

Justin Bieber dvelur á lúxushótelinu Depplum í Fljótunum í Skagafirði. Í þættinum forvitnumst við um það sem trekkir fólk eins og hann á þennan afskekkta stað.

Við ræðum um áhrifin sem ferðaþjónusta fyrir ríka fólkið hefur á litla sveit eins og Fljótin. Þar sem veðráttan er miskunnarlaus, vegir afleiddir og margir bændur hafa brugðið búi.

Um svipað leyti og grunnskólinn lagðist af urðu þyrlur og glæsibifreiðar hluti af hversdeginum í Fljótunum. Við rekjum sögu Deppla og ræðum við íbúa í sveitinni. Viðmælendur: Íris Jónsdóttir, Berglind Rós Magnúsdóttir og

Haukur B Sigmarsson. Umsjón: Þóra Tómasdóttir.

Frumflutt

2. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.

Þættir

,