Þetta helst

,,Skilyrði” stjórnenda Janusar: Starfsmenn áttu að fá sömu laun hjá ríkinu

Stjórnendur fyrirtækisins Janusar settu íslenska ríkinu fjölþætt skilyrði í viðræðum um mögulegan nýjan samning við Sjúkratryggingar Íslands. Skilyrðin voru meðal annars þau eftir íslenska ríkið myndi taka Janus yfir yrði starfsemin öllu leyti óbreytt. Þá er átt við sama skipulag, stjórnun og starfsmannahald.

Eitt af því sem fólst í skilyrðunum var engar breytingar yrðu gerðar á kjörum starfsfólks. Samkvæmt athugun heilbrigðisráðuneytisins reyndust laun starfsmanna Janusar vera umtalsvert hærri en laun sambærilegra starfsmanna þeirra stofnana sem rætt var við.

Umfjöllun um framtíð Janusar hefur verið verið nokkuð áberandi í fjölmiðlum síðustu vikunnar. Janus er starfs-og endurhæfingarfyrirtæki sem aðstoðar börn og fullorðna sem glíma við alls kyns erfiðleika komast aftur á vinnumarkaðinn í nám eða við bæta lífsgæði þeirra.

Skjólstæðingar og aðstandendur barna og fullorðinna sem hafa verið hjá Janusi eru margir hverjir ekki sáttir við fyrirhugaða lokun úræðisins og hafa látið talsvert í sér heyra á opinberum vettvangi vegna þess.

Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Frumflutt

15. apríl 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.

Þættir

,