Þetta helst

Landið fýkur burt I

Hvað kemur upp í hugann þegar við rifjum upp drungaleg myndskeið af fjúkandi svartri hálendisauðn, rofabörðum og brotnandi sandöldum við gróðurströnd? Það eru verða 35 ár síðan landið okkar var við það fjúka burt. Eftir áratugastríð Landgræðslunnar við athygli ráðamanna og almennings, tókst það loksins. Og það var ýmsum þakka, meðal annars þáverandi forseta og tilteknum tónlistarmönnum. Sunna Valgerðardóttir fjallar um umhverfisógnina sem var, rifjar upp umræðuna með fréttamanni og skoðar nútíðina með fyrrverandi landgræðslustjóra. Þetta er fyrri þáttur af tveimur um landið sem fauk burt.

Landið fýkur burt - Ríó tríó

Lag / texti: Gunnar Þórðarson / Jónas Friðrik Guðnason

Úr verki verður fátt,

um verk mun síðar spurt.

Alltaf á leiðinni

til auðnanna á heiðinni

á meðan landið fýkur burt.

Við notum of mörg orð,

um orð mun varla spurt.

Augljóst mun yfirleitt

orðin ei stoða neitt

á meðan landið fýkur í burt.

Brotna sandöldur sífellt upp við gróðurströnd,

brjóta víkur og voga inni í heiðarlönd,

það stoðar lítið strá og lyng

þó stór og mikil höldum þing

með loforðum, því landið fýkur burt.

æska er erfir land

um arfinn gæti spurt.

Hvar ertu móðir mín?

Hvar ertu þjóðin mín?

á meðan landið fýkur burt.

Kveða vindarnir vögguljóð og feigðarspá

yfir hríslum sem engu taki lengur ná,

því moldin öll, sem áður var

þar allt í kring um ræturnar

og líf þeim gaf, er löngu fokin burt.

Svo ríkir auðnin ein

með andlitið dautt og þurrt.

Hún gengur um garð þinn senn..

Geturðu sofið enn

á meðan landið fýkur burt?

Frumflutt

15. feb. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.

Þættir

,