Starfsfólk RIFF kvartar til Vinnumálastofnunar og borgarinnar
Starfsmenn sem unnu á kvikmyndahátíðinni RIFF hafa kvartað til Vinnumálastofnunar og Reykjavíkurborgar vegna stjórnarhátta á hátíðinni. Gagnrýni þeirra beinist að eiganda og framkvæmdastjóra hátíðarinnar, Hrönn Marinósdóttir.
Fyrrverandi starfsmannastjóri RIFF, Þorbjörg Jóhannsdóttir, segir frá reynslu sinni af því að starfa á hátíðinni sem annar starfsmaður, Guðmundur Steinn Gíslason Kjeld. Gagnrýni þeirra snýst meðal annars um launakjör starfsfólks sem sögð eru vera undir lágmarkslaunum.
RIFF fær á hverju ári tugmilljóna styrki frá opinberum aðilum eins og íslenska ríkinu og Reykjavíkurborg auk þess sem Vinnumálastofnun hefur greitt hluta launa starfsfólksins.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Birt
4. mars 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Þetta helst
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.