Týndi kafli Thorsaranna
Fyrir tuttugu árum var heilu upplagi af bók Guðmundar Magnússonar sagnfræðings um Thorsaranna, fargað og ný og breytt útgáfa prentuð. Útgefandi bókarinnar vildi ekki að fjallað yrði…
Uppstoppuðu pólsku villisvíni á stærð við manneskju var stolið úr bílskúr á heimili fjölskyldu í Hafnarfirði árið 1997. Villisvínið hafði þá verið í eigu fjölskyldunnar sem átti það í tæpan áratug og hafði fengið nafnið Villi.
18 árum síðar var villisvíninu skilað til eigenda sinna sem þá bjuggu í Kópavogi. Með því fylgdi dagbók sem það hafði ritað um árabil og fótósjoppaðar myndir af ferðum þess um heiminn.
Hákon Björn Högnason, sonur hjónanna sem keyptu villisvínið á markaði í Póllandi árið 1988, segir okkur sögu Villa.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.