Þetta helst

Auglýsingaherferð SFS vekur hörð viðbrögð og umræður

Auglýsingaherferð Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) þar sem fyrirliggjandi veiðigjaldafrumvarp ríkisstjórnarinnar er gagnrýnt hefur vakið mikla athygli.

Um er ræða myndbönd sem tekin er upp í fjórum sjávarútvegsbæjum á landsbyggðinni þar sem ungt fólk lýsir jákvæðum áhrifum kvótakerfisins og útgerðanna á viðkomandi samfélög.

Bæirnir þar sem myndböndin eru tekin upp eru: Eskifjörður, Grundarfjörður, Dalvík og Vestmannaeyjar. Yfirskrift myndbandanna er fyrirhuguð veiðigjaldahækkun skattur á samfélög.

Einstaklingar eins og Pálmi Gestsson og Elías Pétursson hafa gagnrýnt þessi myndbönd opinberlega.

Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS, ver myndböndin fyrir þessari gagnrýni og útskýrir það sem er á bak við þau.

Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Frumflutt

28. apríl 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.

Þættir

,