Þetta helst

Nýi formaður Sjálfstæðisflokksins og áralöngu átökin

Guðrún Hafsteinsdóttir var kjörin nýr formaður Sjálfstæðisflokksins um helgina. Áralöng átök hafa verið á milli tvegga fylkinga í flokknum en önnur þeirra var á bandi Guðrúnar.

Formannsframboð Guðlaugs Þórs Þórðarsonar árið 2022 endurspeglaði þessi átök en þá laut hann í lægra haldi gegn sitjandi formanni, Bjarna Benediktssyni.

Guðlaugur Þór segir frá því hann hafi stutt Guðrúnu Hafsteinsdóttur og Diljá Mist Einarsdóttur gegn Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur og Jens Garðari Helgasyni. Hann segist hafa beitt sér fyrir þeim í aðdraganda landsfundarins.

Þingmaðurinn ræðir hér um átökin og væringarnar í flokknum og svarar því meðal annars hvort tími þeirra liðinn með nýjum formanni.

Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Frumflutt

4. mars 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.

Þættir

,