Þetta helst

Formaður bæjarráðs Ölfuss vill byggja 95 íbúðir í sveitarfélaginu

Formaður bæjarráðs Ölfuss, Grétar Ingi Erlendssson, á hlut í eignarhaldsfélagi sem ætlar byggja tæplega 100 íbúðir í Ölfusi. Íbúðirnar eiga rísa á svæði sem kallast Bakkamelur. Þetta svæði liggur við veginn á milli Þorlákshafnar og Hveragerðis. Grétar Ingi er einn af eigendum félagsins Bakkamelur ehf. sem mun standa byggingu íbúðanna.

Viðskipti og framkvæmdir þessa félags eru til meðferðar hjá sveitarstjórn Ölfuss en gera þarf ráð fyrir íbúðunum í aðalskipulagi sveitarfélagsins. Í sumar var gerð breyting á aðalskipulagi Ölfuss í bæjarstjórn þar sem gert er ráð fyrir því fjöldi íbúða á svæðinu verði nærlega fjórfaldaður. Fjöldi íbúða á fara úr 25 upp í allt 95. Grétar Ingi sat þennan fund en vék af honum vegna tengsla vinnuveitanda hans, Einars Sigurðssonar, við málið, sögn fulltrúa í minnihlutanum Í Ölfusi.

Grétar Ingi segir hann hafi ekki talið þörf á því tilgreina sérstaklega hann væri hluthafi í félaginu. Hann hafi talið nóg segja hann tengdist félaginu. Fulltrúar minnihlutans í Ölfusi vissu ekki Grétar Ingi væri hluthafi í félaginu þegar þeir greiddu atkvæði með breytingunni á aðalskipulaginu.

Rætt er við Grétar Inga, Gunnstein Ómarsson, Elliða Vignisson, Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur og Eirík Vigni Pálsson um þetta mál.

Frumflutt

2. okt. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.

Þættir

,