Þetta helst

Baðlón og hótel Bláa lónsins við Hofsjökul

Bláa Lónið hf. vill byggja hótel og gera baðlón við rætur Hofsjökuls við Hoffell í Nesjum. Framkvæmdirnar eru utan Vatnajökulsþjóðgarðs en eru rétt við mörk hans.

99 umsagnir hafa borist til Skipulagsstofnunar út af þessum fyrirhuguðu framkvæmdum. Umsagnir eru enn berast um verkefnið þrátt fyrir umsagnarfrestur hafi runnið út 1. desember. Síðasta umsögnin er dagsett 17. desember.

Sigrún Ágústsdóttir, forstjóri Náttúruverndarstofnunar, ræðir um framkvæmdina og segir það krefjandi jafnvægislist feta rétta veginn á milli náttúrunýtingar og náttúruverndar.

Einnig er rætt við og Lovísu Fanney Árnadóttur og Erlu Guðný Helgadóttur sem hafa starfað við ferðamennsku á svæðinu og skiluðu inn umsögnum um verkefnið.

Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Frumflutt

18. des. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.

Þættir

,