Þetta helst

Fjárfestar deila um hlutabréfaviðskipti í Sýn

Félag Reynis Grétarssonar, Gavia Invers, stærsta hluthafi Sýnar hefur stefnt eiganda félagsins Ursus hf, Heiðar Guðjónssyni.

Heiðar Guðjónsson er fyrrverandi forstjóri Sýnar og áður stjórnarformaður, sem lét af störfum og seldi allan hlut sinn í Sýn árið 2022 fyrir 2,2 milljarða króna. Félag Grétars, Gavia, keypti hlut Heiðars.

Reynir Grétarsson og meðeigendur hans í Gavia telja Heiðar hafi leynt, bæði þá, aðra hluthafa og markaðinn allan dýrmætum upplýsingum sumarið 2022. Upplýsingar sem hefðu orðið til þess Heiðar hefði fengið mun minna fyrir bréfin sem hann seldi Gavia.

Fjallað er um þessa deilu í þætti dagsins og útskýrt um hvað hún snýst.

Umsjón: Helgi Seljan

Birt

4. sept. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Þetta helst

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Þættir

,