Þetta helst

Fæðardeilan um vatnið og laxinn á Suðurlandi

Finnur Björn Harðarson, leigutaki laxveiðiárinnar Stóru-Laxár í Hreppum á Suðurlandi, hefur átt í hörðum og persónulegum deilum við eigendur jarðarinnar Iðu síðastliðin ár.

Hann vænir fólkið sem á Iðu um stórfellt, óþarfa laxadráp í ármótum Stóru-Laxár og Hvítar sem skemmi fyrir laxgegnd og hrygningu í Stóru-Láxá.

Eigendur Iðu væna Finn hins vegar um eignaspjöll og ólögmæta umgengni um land þeirra og staðhæfa hann fari offari í persónuárásum gegn þeim.

Deilan er komin til lögreglu og lögmanna og sér hvergi fyrir endann á hendi. Eitt af því sem deilt er um er hvar ós Stóru-Laxár hefjist og þar af leiðandi hvar eigendur Iðu megi veiða og hvar ekki.

Rætt er við Finn Harðarson, Oddfríði Helgadóttur, sem er einn af landeigendum Iðu, og Guðmund Ágústsson, sem er lögfræðingur eigenda Iðu.

Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Lag: Tómas R. Einarsson af plötunni Streng

Frumflutt

26. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.

Þættir

,