Þetta helst

Áhrif glæpasamtakanna frá Venesúela teygja sig til Íslands

Síðastliðna viku hafa verið sagðar margar fréttir í íslenskum og alþjóðlegum fjölmiðlum um þá ákvörðun Donalds Trumps Bandaríkjaforseta senda mörg hundruð meðlimi venesúelsks glæpagengis úr landi.

Glæpasamtökin heita El Tren de Aragua og eru starfandi í mörgum löndum í Suður-Ameríku. Meðlimir gengisins voru fluttir frá Bandaríkjunum í fangelsi í El Salvador.

El Tren de Aragua hefur verið sagt vinna náið með einræðisherranum í Venesúela, Nicolás Maduro, og meðal annars vinna ódæðisverk fyrir hans hönd í heimalandinu og annars staðar.

Eitt af því sem er áhugavert við þessar fréttir frá Bandaríkjunum um þetta venesúelska glæpagengi er margir innflytjendur frá Vensúela sem hafa komið hingað til lands á liðnum árum segjast vera flýja umrætt gengi. Í Þetta helst hafa til dæmis verið birt viðtöl við minnsta kosti tvo hælisleitendur sem segjast hafa lifað við hótanir frá El Tren de Aragua í búsetulandi sínu.

Einn af þeim heitir Hector Montilla en hann var nauðungarfluttur frá Íslandi til Venesúela í fylgd íslenskra lögreglumanna í byrjun febrúar.

Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Frumflutt

21. mars 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Þetta helst

Þetta helst

Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.

Þættir

,