Mannlegi þátturinn

Leikárið í Þjóðleikhúsinu, Bára og Kvæðamannafélagið og Sváfnir lesandi vikunnar

Við héldum áfram yfirferð okkar um það sem verður á fjölum leikhúsanna í vetur, í síðustu viku var það Borgarleikhúsið, er komið Þjóðleikhúsinu. Magnús Geir Þórðarson, Þjóðleikhússtjóri, kom í þáttinn og sagði okkur frá því sem er á döfinni á nýhöfnu leikári, en Þjóðleikhúsið á einmitt 75 ára afmæli um þessar mundir.

Dagur rímnalagsins er í dag og við fengum formann Kvæðamannafélagsins Iðunnar Báru Grímsdóttur til okkar en í dag verður sérstök hátíðardagskrá í Salnum í Kópavogi, þar sem barnahópar kveða og Rímnafögnuður í kvöld þar sem frumfluttir verða tveir nýjir rímnaflokkar og annar sérstaklega saminn við þetta tækifæri, Kópavogsbragur hinn síðari. Bára Grímsdóttir leyfði okkur heyra brot úr honum í þættinum.

Svo var það lesandi vikunnar, í þetta sinn er það Sváfnir Sigurðarson, tónskáld, textahöfundur, markaðs- og kynningafulltrúi, en hann er einmitt gefa út nýja barnabók sem kallast Brandara bíllinn. Við fengum hann til segja okkur aðeins frá henni og svo auðvitað líka frá því hvaða bækur hann hefur verið lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Sváfnir sagði frá eftirfarandi bókum og höfundum:

Guð leitar Salóme e. Júlía Margrét Einarsdóttir

Óvæntur ferðafélagi e. Eiríkur Bergmann

Sextíu kíló af kjaftshöggum e. Hallgrímur Helgason

Stundarfró e. Orri Harðar

Hundrað ára einsemd e. Gabriel Garcia Marquez

Punktur punktur komma strik e. Pétur Gunnarsson

Bjargvætturinn í grasinu e. J.D Salinger

Tónlist í þættinum í dag:

Þjóðsaga / Þrjú á palli (þjóðlag, texti Jónas Árnason)

Létt / Ríó tríó (Gunnar Þórðarson, texti Jónas Friðrik Guðnason)

Flóð og fjara / Sváfnir Sigurðarson (Sváfnir Sigurðarson)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Frumflutt

15. sept. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: mannlegi@ruv.is

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,