Mannlegi þátturinn

Snjallforrit gegn matarsóun, virkniþing fyrir eldra fólk og þýskir kvikmyndadagar

Við kynntum okkur aðeins sprotafyrirtækið Humble í dag, þau hafa hannað smáforrit fyrir snjallsíma þar sem boðið er upp á mat sem annars færi til spillis á lækkuðu verði sem þá bæði býður notendum upp á ódýrari vöru og hjálpar til við minnka matarsóun. Á einu ári tókst notendum appsins koma í veg fyrir 31 tonn af matvælum færu til spillis. Rósa S. Markúsdóttir og Hlynur Rafn Guðmundsson voru hjá okkur í dag og sögðu okkur betur frá forritinu og verkefninu.

Við fræddumst svo um virkniþing í þágu eldra fólks í Kópavogi sem fer fram á morgun í Kórnum. Þar er verið stuðla félagslegri virkni eldra fólks í bæjarfélaginu. Hlín Sigþórsdóttir, verkefnastjóri velferðasviðs og Fríða Karen Gunnarsdóttir, vekefnastjóri Virkni og vellíðan hjá Kópavogsbæ, komu í þáttinn og sögðu okkur betur frá virkniþinginu.

Bíó Paradís, í samstarfi við Goethe-Institut Dänemark, German Films og Þýska sendiráðið á Íslandi, standa fyrir Þýskum kvikmyndadögum í sextánda sinn. Þeir hefjast á föstudaginn og það kennir ýmissa grasa í dagskránni sem vert var skoða með Ásu Baldursdóttur frá Bíó Paradís.

Tónlist í þættinum í dag

Áður oft ég hef arkað þennan veg / Haukur Morthens og hljómsveit Sigurd Jensen (erlent lag, texti Egill Bjarnason)

Let go of Your Plans / Lukas Nelson & The Promise of the Real (Lukas Nelson)

Ágústín / Sigrún Jónsdóttir (Åge Gerard, texti Jón Sigurðsson)

Io E Te (Ég og þú) / Emilíana Torrini (Leone Tinganelli)

UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Birt

24. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: mannlegi@ruv.is

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,