• 00:05:01Hilmar Guðjónsson - föstudagsgestur
  • 00:22:35Hilmar Guðjónsson - seinni hluti
  • 00:39:15Matarspjallið - ólífuolía

Mannlegi þátturinn

Hilmar Guðjónsson leikari föstudagsgestur og grískar ólífuolíur í matarspjalli Sigurlaugar

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikarinn Hilmar Guðjónsson. Hann hefur leikið ótal hlutverk á sviði og fyrir framan myndavélina á þeim 15 árum frá því hann útskrifaðist. Hann er vesturbæingur í húð og hár og KR-ingur, en við fórum með honum aftur í tímann á æskuslóðirnar, ræddum töfra leiklistarinnar og áskoranir hennar.

Matarspjallið með Sigurlaugu Margréti var auðvitað á sínum stað. Í dag talaði hún við okkur um ólífuolíur og hvernig til dæmis Grikkir nota hana í mat.

Tónlist í þættinum í dag:

Það sýnir sig / Hjálmar (Sigurður Halldór Guðmundsson)

Lucille / Han Young Ae (Han Young Ae)

Oddaflug / Tómas Jónsson (Tómas Jónsson)

UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG HELGA ARNARDÓTTIR

Frumflutt

6. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: mannlegi@ruv.is

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,