Mannlegi þátturinn

TRE spennulosun, lömunarveiki og veðurspjallið

TRE (Tension, Stress & Trauma Release) er leið sem ætlað er hjálpa líkamanum losa um spennu, streitu og áföll sem liggja djúpt í vöðvum líkamans. Leiðin er þróuð af Dr. David Berceli til virkja náttúruleg viðbrögð líkamans á öruggan hátt með því leyfa líkamanum skjálfa eða titra þannig losni um vöðvaspennu og taugakerfið róist. TRE getur einnig verið hjálpleg leið til losa um daglega streitu og spennu vegna langvarandi álags, veikinda eða áfalla. Svava Brooks Svanhildardóttir kom í þáttinn og fræddi okkur um TRE.

Þann 24. október á hverju ári er Alþjóðadagur Polio, eða lömunarveiki. Lömunarveiki er mjög smitandi veirusjúkdómur, sem getur leitt til lömunar og dauða. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) lýsti því yfir árið 1988, stefna yrði útrýmingu lömunarveiki í heiminum. Síðan þá hefur smitum lömunarveiki fækkað um 99% á heimsvísu og 3 milljarðar barna hafa verið bólusett. Enn hefur þó ekki tekist uppræta þessa veiru fullu og til dæmis komu nýlega upp tilfelli á Gaza þar sem ekki hefur náðst klára bólusetningu barna vegna árása Ísraelshers. Jón Karl Ólafsson, umdæmisstjóri Rótarý á Íslandi, kom í þáttinn í dag, en Rótarýhreyfingin hefur unnið útrýmingu lömunarveiki ásamt Aþjóðaheilbrigðisstofnuninni og fleiri samstarfsaðilum.

Svo var það veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni. Það stefnir í október verði þriðji kaldi mánuðinn í röð hér á landi. Langtímahorfur inn í nóvember hafa breyst síðustu daga og útlit er fyrir talsverðar breytingar í veðri frá og með helginni. Svo hélt Einar áfram fræða okkur um veðurstöðvar landsins, en í dag sagði hann okkur frá eldri veðurstöðvum í vitum landsins, einkum Galtavita og Hornbjargsvita. Um miðja síðustu öld gegndu nærri 10 vitaverðir einnig starfi veðurathugnarmanna. Og lokum sagði Einar okkur frá mikilvægi veðurskeyta fyrir fiskveiðar og alþjóðasiglingar við landið.

Tónlistin í þættinum

Í rökkurró (Manstu ekki vinur) / Helena Eyjólfsdóttir (B. Rau, A. Nevins, Morton Nevins, texti Jón Sigurðsson)

Allt í gúddí / Ólöf Arnalds (Ólöf Arnalds)

Vetur / Egill Ólafsson (Egill Ólafsson)

En elsker i Berlin / Kari Bremnes (Kari Bremnes)

UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Frumflutt

29. okt. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: mannlegi@ruv.is

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson

Þættir

,