Mannlegi þátturinn

Hláturjóga, leiðsöguhundar og golfsumarið 2025

Það eru ekki allir sem treysta sér í jógaæfingar en líklega geta flestir tileinkað sér hláturjóga. Það er talið hláturjóga dragi úr streitu og hjálpi líkamanum framleiða endorfín og fleiri jákvæð efni sem hafa ýmis jákvæð áhrif á okkur, bæði líkamlega og andlega. Við fengum í dag tvo hláturjógaleiðbeinendur, Ástu Valdimarsdóttur og Þorstein Gunnar Bjarnason.

Alþjóðlegur dagur leiðsöguhunda er haldinn hátíðlegur um allan heim í dag. Á síðastliðnum árum hefur leiðsöguhundum fjölgað jafnt og þétt og búast við enn bætist í þennan fjölbreytta og frábæra hóp á næstu árum. Vonandi vitum við það flest þegar leiðsöguhundur er í vinnubeislinu sínu þá ættum við gefa honum vinnufrið, því hann þarf einbeita sér verkefninu sem fyrir hann er lagt. Þorkell Steindal og hundurinn hans Gaur komu í þáttinn í dag og fræddu okkur um eiginleika góðra leiðsöguhunda og fleira.

Lóan er komin, hitastigum fjölgar, sólin hækkar á lofti og grasið grænkar. Þá fara kylfingar um allt land kitling í lófana og löngun til grípa í golfkylfur sínar og elta litlu kúlurnur ofan í holurnar í sem fæstum höggum. Tugir þúsunda eru meðlimir í golfklúbbum landsins og Brynjar Eldon Geirsson, framkvæmdastjóri Golfsambands Íslands var á línunni í dag og sagði okkur frá golfsumrinu sem er framundan, hvernig vellir koma undan vetri, innanhúsgolfi og fleiru.

Tónlist í þættinum í dag:

Léttlynda löggan / Stefán Karl Stefánsson (Charles Penrose, texti Gísli Rúnar Jónsson)

Hláturpolka / Sigríður Magnúsdóttir og Hljómsveit Ásgeirs Sverrissonar (May Marthall texti, Númi Þorbergsson)

Hundurinn / Varsjárbandalagið og Karlakórinn Case (Sigríður Ásta Árnadóttir)

Sólin er komin / Mugison (Örn Elías Guðmundsson)

UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Frumflutt

30. apríl 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: mannlegi@ruv.is

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,