Mannlegi þátturinn

Ný bók um hjátrú, vinkill frá Guðjóni og Ástrós Hind lesandi vikunnar

Flestir Íslendingar eru einhverju leyti hjátrúarfullir og þekkja þetta helsta forðast ganga undir stiga og berja í tré og segja 7-9-13. er komin út bók hjátrú; Svartir kettir, fullt tungl og rauðhærðar konur. Hér er fjallað um hjátrú af ýmsum toga, innlenda, erlenda, gamalgróna og nýja. Þjóðháttafræðingurinn Símon Jón Jóhannsson er höfundur bókarinnar og hann kom í þáttinn í dag.

Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni og vinkill dagsins fjallar um mismunandi nálgun manneskjunnar á „lenda í“ hinum ýmsu aðstæðum, hvernig sum okkar eru bara kærulaus og lenda í þessu og hinu og hvernig önnur segjast bara hafa „lent í“ ýmsu, en hafa í raun stefnt því ljóst og leynt. Örlítið er fjallað um írska þjóðtrú í því samhengi og dæmi eru tekin af tveimur mönnum sem hafa mismunandi tengingar við eyjur í Atlantshafi. Báðir eru þeir dugnaðarforkar og jafn merkilegir, annar er svolítið frægur en hinn ekki.

Svo var það lesandi vikunnar, í þetta sinn var það Ástrós Hind Rúnarsdóttir, bókmenntafræðingur og sviðslistakona. Við fengum vita hvaða bækur hún hefur verið lesa undanfarið og svo hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina.

Tónlist í þættinum

Hvað kostar hamingjan? / Nýdönsk og Sinfó (Ólafur Hólm, texti Björn Jörundur Friðbjörnsson)

For the good times / The Little Willies (Kris Kristofferson)

Suma daga / Moses Hightower (Andri Ólafsson, Steingrímur Teaque, Magnús Trygvason Elíasen og Daníel Friðrik Böðvarsson)

UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Frumflutt

18. nóv. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: mannlegi@ruv.is

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson

Þættir

,