• 00:04:55Saga Garðarsdóttir - föstudagsgestur
  • 00:21:40Saga Garðarsdóttir - seinni hluti
  • 00:39:27Matarspjallið - Sigulaug á Krít

Mannlegi þátturinn

Saga Garðarsdóttir föstudagsgestur og matarspjall frá Krít

Saga Garðarsdóttir leikkona var föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn. Hún leikur eitt aðahlutverkið í nýrri kvikmynd Hlyns Pálmasonar, Ástin sem eftir er sem frumsýnd var í Cannes fyrr í mánuðinum og fékk ljómandi góðar viðtökur. Saga er tiltölulega nýlent eftir viðburðaríka daga í Cannes en hún hefur auðvitað verið á sviðum leikhússanna síðustu ár ásamt því vera sjálfstætt starfandi gamanleikkona og grínisti um allar trissur. Hún er byrjuð æfa leikritið ÍBÚÐ 10B eftir Ólaf Jóhann Ólafsson í leikstjórn Baltasars Kormáks sem frumsýnt verður í Þjóðleikhúsinu í haust. Við fórum í ferðalag í gegnum lífið með Sögu Garðarsdóttur í þættinum í dag.

Svo var auðvitað matarspjallið með Sigurlaugu Margréti á sínum stað, en hún er stödd í þetta sinn á Krít hvaðan hún var í beinu sambandi. Lambakjöt, sósur, fetaostur, safaríkar melónur, hunang og olía úr fjöllunum er meðal þess sem hún sagði okkur frá í dag.

Tónlist í þættinum í dag:

Reyndu aftur / Mannakorn (Magnús Eiríksson)

Í draumalandinu / Space Station (Björgúlfur Jes Einarsson)

Það sem enginn veit / Eysteinn Pétursson (Þórbergur Þórðarson)

UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG HELGA ARNARDÓTTIR

Frumflutt

30. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: mannlegi@ruv.is

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,