• 00:07:06Ragnhildur og Katrín - Lífið er núna - Kraftur
  • 00:27:58Gréta Bergrún - slúður í samfélaginu

Mannlegi þátturinn

Lífið er núna og slúður á vinnustöðum og í litlum samfélögum

Lífið er núna dagurinn er haldin í dag, en þessi vitundarvakning Krafts er árleg og er ein stærsta fjáröflun félagsins og stendur til 12.febrúar. Kraftur hvetur vinnustaði til brjóta upp hversdagsleikann með því t.d. bjóða upp á appelsínugular veitingar og jafnvel klæðast í appelsínugul föt og einhverjar byggingar eru lýstar upp með appelsínugulri lýsingu sem er litur Krafts. Við ræddum við þær Ragnhildi Þóru Hafsteinsdóttur og Katrínu Petersen í dag. Ragnhildur sagði okkur frá þeirri lífsreynslu greinast með bráðahvítblæði þegar hún var í mastersnámi og á 30. viku í meðgöngu af þriðja barni. Ragnhildur var greind á fimmtudegi og var líf hennar og ófædda drengsins hennar í húfi. Lyfjameðferð hófst strax tveimur dögum eftir greiningu og auki kom í ljós hjartabilun sem gerði það verkum það yrði ekki öruggt fyrir hana fara inn í fæðingu. Kraftur selur húfur til styrktar í tilefni vitundarvakningarinnar og ágóðinn af sölunni fer allur í styrktarsjóð Krafts.

Hvernig er talað á þínum vinnustað? Er mikið slúðrað þar? Gréta Bergrún Jóhannesdóttir, doktor í félagsfræði, sem kallar sig líka Doktor slúður, fer á vinnustaði, hittir hópa, félagasamtök og jafnvel bæjarfélög þar sem hún talar um slúður sem valdatæki og stjórnun, en í doktorsrannsókn sinni rannsakaði hún slúður í minni samfélögum um allt land. Gréta Bergrún útskýrði þetta betur fyrir okkur í þættinum í dag.

Tónlist í þættinum:

Heima er hjá þér / Magni Ásgeirsson (Vignir Snær og Magni Ásgeirsson)

Hér á ég heima / Fjallabræður og Sverrir Bergmann (Tómas Jónsson og Magnús Þór Sigmundsson)

Heima / Haukur Morthens og hljómsveit Jörns Grauengaards (Oddgeir Kristjáns, texti Ási í Bæ)

UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Frumflutt

30. jan. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: mannlegi@ruv.is

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,