• 00:07:08Hannes Óli Ágústsson - föstudagsgestur
  • 00:23:01Hannes Óli - seinni hluti
  • 00:39:00Matarspjall - portúgalskur matur

Mannlegi þátturinn

Hannes Óli föstudagsgestur og portúgalskt matarspjall

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikarinn Hannes Óli Ágústsson. Frá því hann útskrifaðis frá Listaháskóla Íslands árið 2009 hefur hann leikið mikinn fjölda hlutverka á sviði og fyrir framan kvikmyndavélar, til dæmis í fjölmörgum áramótaskaupum og svo síðast í gamanþáttaröðinni Hæst sem er sýnd hjá Sjónvarpi Símans, en hann er einn handritshöfunda auk þess leika annað aðalhlutverkið. Við ræddum við hann um lífið og tilveruna, ferðuðumst með honum aftur í tímann á æskuslóðirnar í Breiðholtinu og stikluðum á stóru í gegnum lífið til dagsins í dag.

Svo var auðvitað matarspjallið með Sigurlaugu Margréti á sínum stað. Í dag ræddum um portúgalskan mat, saltfisk, sjávarrétti, skrýtna samloku og sætabrauð.

Tónlist í þættinum í dag:

Í útvarpinu / Björgvin Halldórsson og HLH flokkurinn (Björgvin Halldórsson, texti Jónas Friðrik)

Berghain / Rosalia & Björk & Yves Tumor (Rosalia Vila Tobella, Noah Goldstein & Dylan Wiggins)

Bankrobber / The Clash (Joe Strummer)

UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Birt

10. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: mannlegi@ruv.is

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,