Mannlegi þátturinn

Þjóðlistahátíðin VAKA og Jónatan Garðars um Magnús Eiríksson

Á sunnudaginn hefst Þjóðlistahátíðin VAKA í menningarhúsum Kópavogs og það er mikil menningarveisla sem þarna mun fara fram, tónlist, þjóðdansar, hagyrðingakvöld, íslenskt handverk, harmónikkuball, námskeið fyrir börn og fullorðna, vinnusmiðjur, rímnafögnuður og margt fleira. Ragnheiður Gröndal og Bára Grímsdóttir komu í þáttinn og sögðu betur frá.

Við héldum svo áfram spjalli um ávaxtaflugur, sem sér í rauninni engan enda á. Við lásum upp afskaplega skemmtilega sögu af geitungabúi í Svíþjóð og glænýrri Nilfisk ryksugu. Við þökkum Jósep Blöndal fyrir senda okkur þessa skemmtilegu sögu.

Svo kom Jónatan Garðarsson til okkar og hélt áfram fræða okkur um íslenskst tónlistarfólk. Í síðustu viku var það Gunnar Þórðarson en í þetta sinn sagði Jónatan okkur frá ferli Magnúsar Eiríkssonar, sem einnig féll frá í ár. Magnús átti langan farsælan feril, hann er einn af þessum stóru í dægurtónlist á Íslandi, bæði sem gítarleikari, lagasmiður og svo ekki síst sem textahöfundur. Við þekkjum öll fjölda laga sem hann samdi, auk þess sem hann rak hljóðfærabúðina RÍN ásamt fjölskyldu sinni. Við komum auðvitað ekki tómum kofanum hjá Jónatani og svo fengum við einnig heyra tvö af frábæru lögum Magnúsar.

Tónlist í þættinum í dag:

Hótel jörð / Egill Ólafsson (Heimir Sindrason, ljóð Tómas Guðmundsson)

Göngur og réttir / Bára Grímsdóttir (Þjóðlag, texti Grímur H. Lárusson)

Blús í G / Mannakorn (Magnús Eiríksson)

Samferða / Mannakorn (Magnús Eiríksson)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Birt

10. sept. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: mannlegi@ruv.is

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,