• 00:05:30Jón Viðar og Sigrún - forvarnir
  • 00:19:19Kristjana Dröfn - streita og djúp slökun
  • 00:39:38Póstkort um banana - Magnús R. Einarsson

Mannlegi þátturinn

Bruna- og vinnuslysaforvarnir, Kristjana Dröfn og bananapóstkort frá Magnúsi

Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins kom í þáttinn í dag og við ræddum við hann um brunaforvarnir og í því fór hann samhengi yfir brunann sem varð í Kringlunni í júní í fyrra og hvað læra af honum. Með honum kom Sigrún A. Þorsteinsdóttir, sérfræðingur í forvörnum hjá VíS, en hún fræddi okkur um vinnuslys, öryggismál og forvarnir á vinnustöðum.

Kristjana Dröfn Haraldsdóttir jógakennari fór í þrot árið 2017 og ákvað í kjölfarið taka heilsuna í gegn. Í dag vinnur hún sem heilsumarkþjálfi, jógakennari og nuddari og rekur fyrirtækið Nærandi líf þar sem hún hjálpar öðrum losa sig við streitu og tökum á djúpri slökun. Við heyrðum hvernig hún náði endurstilla hugsanamynstur sem hún var föst í og öðlast betra líf.

Við fengum svo póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag. Í þessu póstkorti segir Magnús af áhyggjum heimsins vegna bananaræktar sem er í hættu vegna þess ósigrandi sveppur leggst á bananaplöntuna og drepur hana. Þetta er hægfara þróun en óstöðvandi hingað til. Bananinn er einn vinsælasti ávöxtur heims fyrir utan mango og epli og ef ekkert verður við ráðið þá munu bananar hverfa úr verslunum innan aldarfjórðungs.

Tónlist í þættinum í dag:

Sólarsamba / GÓSS (Magnús Kjartansson, texti Halldór Gunnarsson)

Dansað á dekki / Fjörefni (P. Nicholas, texti Ellert Borgar Þorvaldsson)

Vor í Reykjavík / Uppáhellingarnir (Andri Ólafsson, texti Þórarinn Már Baldursson)

Og co. / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Magnús Þór Sigmundsson, texti Vilhjálmur Vilhjálmsson)

UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Frumflutt

26. mars 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: mannlegi@ruv.is

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,