• 00:06:17Grímur Sæmundss. - gervigreind f. venjulegt fólk
  • 00:24:56Eggert Ágúst - Drottningin í dalnum

Mannlegi þátturinn

Gervigreind fyrir venjulegt fólk og Drottningin í dalnum

Gervigreind hefur tekið mikið pláss í umræðunni undanfarið, sérstaklega eftir opnað var fyrir aðgengi almennings ýmis konar tólum eins og ChatGPT, þar sem gervigreindinni virðast engin takmörk sett með hvað hún getur skrifað og jafnvel framkvæmt á ógnarhraða. Það er þó bara ein birtingarmynd gervigreindar, hún er í rauninni allt í kringum okkur og ekki er víst allir viti nákvæmlega hvað hún er. Við erum bara rétt sjá toppinn af ísjakanum þegar kemur mögulegri notkun gervigreindar og ýmist er talað um hana sem spennandi þróun með endalausa möguleika eða það er varað við henni og hún misnotuð. Grímur Sæmundsson, verkefnastjóri gagna og gervigreindar hjá Crayon, kom í þáttinn og fræddi okkur um það sem hann kallar gervigreind fyrir venjulegt fólk, sem hann hefur verið kenna á námskeiði hjá Opna háskólanum í HR.

Út er komin bók sem heitir Drottningin í dalnum. Þetta er saga Guðrúnar Margrétar Þorsteinsdóttur, tveggja eiginmanna og sona hennar í Vatnsdal. Saga Guðrúnar Margrétar er um margt merkileg. Foreldrar hennar urðu láta hana frá sér vegna fátæktar og ómegðar þegar hún var aðeins þriggja ára. Hún eignaðist þrjú börn og varð ekkja í annað sinn 42 ára. Í kjölfarið tókst hún á við það verkefni kaupa jörðina Haukagil og þar bjó hún með reisn í 26 ár. Hér er um ræða heimildarrit sem bregður ljósi á hag- og samfélagssögu Íslendinga í tæplega eina og hálfa öld. Eggert Ágúst Sverrisson er höfundur bókarinnar en hann fór í sagnfræðinám eftir hann hætti vinna og segir það hafa verið eina af betri ákvörðunum lífs síns. Við spjölluðum við Eggert í dag.

Tónlist í þættinum:

Þannig týnist tíminn / Ragnar Bjarnason og Lay Low (Bjartmar Guðlaugsson)

Þú komst við hjartað í mér / Hjaltalín(Páll Óskar, Sveinbjörn Bjarki Jónsson og Toggi, Þorgrímur Haraldsson)

Í hjarta þér / Katrín Halldóra (Jón Múli og Jónas Árnasynir)

UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Frumflutt

27. nóv. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: mannlegi@ruv.is

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson

Þættir

,