Mannlegi þátturinn

Ný uppgötvun í sambandi við fósturlát, Discover Grindavík og veðurspjallið

Við fræddumst í dag um nýja uppgötvun vísindafólks Íslenskrar erfðagreiningar og samstarfsfólks þeirra í Danmörku þar sem þau raðgreindu tæplega fimm hundruð sýni úr fósturlátum meðal danskra fjölskyldna og komust því ein af hverjum 136 þungunum endar með fósturláti vegna nýrra stökkbreytinga í fóstrinu. Þetta samsvarar því slíkar stökkbreytingar valdi um milljón fósturlátum árlega á heimsvísu. Hákon Jónsson og Guðný A. Árnadóttir, vísindafólk hjá Íslenskri erfðagreiningu, komu í þáttinn í dag og útskýrðu fyrir okkur hvernig þessar rannsóknir komu til, hvernig þær voru framkvæmdar, niðurstöðurnar og hvað þær þýða.

Þrátt fyrir jarðskjálfta, eldgos og viðvarandi óvissu í Grindavík hefur fyrrverandi kennari, og fyrrverandi upplýsinga- og markaðsfulltrúi bæjarins til 17 ára, Kristín María Birgisdóttir, fundið tækifæri til halda sögu Grindavíkur á lofti. Hún hefur stofnað ferðaþjónustufyrirtækið DISCOVER GRINDAVÍK fyrir erlenda og innlenda ferðamenn þar sem hún ætlar rekja sögu bæjarins og náttúruhamfaranna undanfarin ár. Kristín María sagði okkur frá þessu í þættinum.

Einar Sveinbjörnsson var svo hjá okkur í dag með veðurspjallið, reyndar í beinni sambandi frá Lettlandi. Í þetta sinn talaði hann við okkur um hvaða áhrif loftslagsbreytingar hafa í Eystrasaltsríkjunum. Svo talaði hann um moskítóflugur og vangavelturnar sem koma upp aftur og aftur, þ.e. af hverju þær berast ekki til Íslands? Á meðan þær til dæmis grassera á Grænlandi. Tengist það veðurfarinu? Og lokum endaði Einar á hugleiðingum um sjávarhitann, sem er óvenjulega hár fyrir norðan land, hvað veldur því?

Tónlist í þættinum í dag:

Heim í Búðardal / Ðe lónlí blú bojs (Gunnar Þórðarson, texti Þorsteinn Eggertsson)

Ég veit þú kemur / Ellý Vilhjálms (Oddgeir Kristjánsson, texti Ási í Bæ)

Gvendur á Eyrinni / Dátar (Rúnar Gunnarsson, texti Þorsteinn Eggertsson)

Mambó / Haukur Morthens og Kvintett Jörn Grauengaard (Merril, texti Loftur Guðmundsson)

UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG HELGA ARNARDÓTTIR

Frumflutt

27. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: mannlegi@ruv.is

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,