• 00:06:10Snæfríður Þóra - inngilding ungmenna með fötlun
  • 00:17:15María Ögn - hjólreiðar
  • 00:34:30Edda Olgud. - kaffi og þarmaflóran

Mannlegi þátturinn

Inngilding ungmenna með fötlun, hjólreiðar með Maríu og vísindaspjall um kaffi og þarmaflóruna

Snæfríður Þóra Egilsson, iðjuþjálfi og prófessor í fötlunarfræðum við hefur um árabil rannsakað líf, þáttöku og aðstæður barna með fötlun. Hún hefur skoðað áskoranir sem börn og ungmenni með fötlun þurfa ganga í gegnum, hverjar áskoranirnar eru og hún hefur lagt áherslu á og hefur lagt út af rannsóknum sem hafa beinst börnunum og ungmennunum sjálfum, þar sem hlustað er á þeirra skoðanir og reynslu og hvað þeim hefur verið efst í huga og hvað ungt fólk með fötlun hefur sett á oddinn. Snæfríður kom í þáttinn og fræddi okkur um málefni barna og ungmenna með fötlun en hún mun einmitt halda erindi á morgun á Vorráðstefnu Ráðgjafastöðvarinnar og Gló styrktarfélags.

María Ögn Guðmundsdóttir er ein af fremstu hjólreiðakonum landsins, hún hefur haldið fræðandi fyrirlestra um hjólafærni í tilefni af átakinu Hjólað í vinnuna sem hófst 1. maí. María Ögn fjallar þá um hjólreiðar frá A til Ö, hugarfarið, menninguna og notagildið. Við heyrðum í henni þættinum þar sem hún var stödd á Spáni og fengum hana til fara yfir helstu atriði sem snúa hjólreiðum, hvort sem um er ræða keppni eða daglegar samgöngur.

Edda Olgudóttir kom svo til okkar í vísindaspjallið en hún talaði um það hvort kaffidrykkja hafi áhrif á þarmaflóruna og skoðaði rannsókn einmitt um það.

Tónlist í þættinum í dag:

Einsemd / Snorri Helgason (Snorri Helgason og Guðmundur Óskar Guðmundsson)

Vegbúi / KK (Kristján Kristjánsson

Bicycle Race / Queen (Freddie Mercury)

What a Fool Believes / Doobie Brothers (Michael McDonald og Kenny Loggins)

UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Birt

6. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: mannlegi@ruv.is

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,