Mannlegi þátturinn

Benedikt Erlingsson föstudagsgestur og matarspjall um hafmeyju og kanínur

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikarinn, leikstjórinn og kvikmyndagerðarmaðurinn Benedikt Erlingsson. Hann er þessa dagana leika á sýninguna sína Mr. Skallagrímsson í Landnámssetrinu í Borgarnesi eftir 10 ára hlé. Við ræddum við hann um ferilinn, ást hans á segja sögur, stöðu kvikmyndagerðar á Íslandi og margt fleira í skemmtilegu spjalli í þættinum í dag.

Svo tókum við upp þráðinn í matarspjallinu með Sigurlaugu Margréti í dag. Hún sagði okkur frá ferð sinni til Napólí og eyjunnar Ischia og matarupplifun sinni þar. Sætabrauði, kaffihús, ricotta ostur, kanínukjöt, pasta, hafmeyja og fleira í matarspjalli dagsins.

Tónlist í þættinum í dag:

Sigling / Magnús Þór Sigmundsson (Magnús Eiríksson)

Glor vinduer / Trine Dyrholm (Anne Kristine Linnet)

Kærleikur / Óðmenn (Jóhann G. Jóhannsson, texti úr kórintubréfi Páls postula)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Birt

4. sept. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: mannlegi@ruv.is

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,