Mannlegi þátturinn

Bændasamtökin, Ungliðahreyfing Amnesty og ókeypis sumarnámskeið Okkar heims

Bændasamtök Íslands standa herferðinni - Við erum öll úr sömu sveit - þessa dagana. Beinir snertifletir almennings við bændur og matvælaframleiðslu eru færri en áður sem óhjákvæmilega bitnar á tengslum og innsýn. Samtökin vilja minnka bilið milli bænda og þjóðarinnar og opna faðminn og samtal við þjóðina. Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtakanna var hjá okkur í dag og sagði betur frá þessu.

Svo kynntum við okkur starfsemi Ungliðahreyfinar Amnesty International, sem er er félagsskapur fyrir ungt fólk á aldrinum 14 til 25 ára. Hlutverk hennar er vekja athygli á mannréttindum og mannréttindabrotum um allan heim. Heiðrún Vala Hilmarsdóttir og Cynthia Anne Namugambe, úr Ungliðahreyfingunni og Árni Kristjánsson, ungliða- og aðgerðarstjóri Íslandsdeildar Amnesty International sögðu okkur allt um þetta í þættinum.

lokum fræddumst við um Okkar heim og ókeypis sumarnámskeið fyrir börn foreldra sem glíma við geðrænan vanda. Okkar heimur er stuðningsúrræðið sem stendur þessum námskeiðum auk annars fræðslu- og stuðningsstarfs fyrir þennan hóp barna, en eitt af hverjum fimm börnum í heiminum á foreldra með geðrænan vanda. Sigríður Gísladóttir, framkvæmdastjóri Okkar heims, og Þórunn Edda Sigurjónsdóttir, félagsráðgjafi, komu í þáttinn.

Tónlist í þættinum í dag:

Sólarsamba / Bræðrabandalagið (Magnús Kjartansson, texti Halldór Gunnarsson)

Sólarlag / Bergþóra Árnadóttir (Bergþóra Árnadóttir, texti James G. Johnson)

Sólin er komin / Mugison (Örn Elías Guðmundsson)

Sól mín sól / Anna Pálína Árnadóttir (Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson)

UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Frumflutt

20. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: mannlegi@ruv.is

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,